{"product_id":"kreatin-duft-hreint-creatine-monohydrate","title":"Kreatín Duft - Hreint Creatine Monohydrate","description":"\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003eHreint kreatín mónóhýdrat fyrir styrk og líkamlega frammistöðu\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eBioCare Pure Creatine Monohydrate er hreint og vandað kreatín í duftformi. Kreatínið er fínmalað og leysist því auðveldlega upp í bæði heitum og köldum drykkjum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eKreatín er eitt mest rannsakaða fæðubótarefnið á sviði þjálfunar og hreyfingar. Það eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar, stuttar og ákafar æfingar og hentar því sérstaklega vel þeim sem stunda styrktarþjálfun, spretti eða aðra hreyfingu þar sem reynir á styrk og kraft.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eÁvinningur kreatíns er almennt mestur þegar það er tekið samhliða reglulegri þjálfun, sérstaklega styrktarþjálfun. Regluleg notkun getur hjálpað til við að auka styrk og æfingagetu og þannig stutt við uppbyggingu og viðhald vöðvamassa.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eKreatín getur einnig verið góður kostur fyrir fólk á miðjum aldri, þar á meðal konur sem vilja styðja við styrk og viðhald vöðvamassa. Með aldrinum minnkar vöðvamassi og vöðvastyrkur smám saman og því verður sífellt mikilvægara að viðhalda styrk með reglulegri hreyfingu. Dagleg neysla kreatíns getur aukið áhrif styrktarþjálfunar á vöðvastyrk hjá fólki 55 ára og eldra.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eHelstu eiginleikar\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003e5 g af kreatín mónóhýdrati í dagskammti\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eEykur líkamlega frammistöðu við endurteknar, stuttar og ákafar æfingar\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eHentar sérstaklega vel samhliða styrktarþjálfun\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eGetur stutt við aukinn styrk og æfingagetu\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eGóður kostur fyrir fólk á miðjum aldri og eldra sem vill viðhalda vöðvastyrk\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eFínmalað duft sem blandast auðveldlega í drykki\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003e99,9% hreint kreatín samkvæmt óháðum prófunum\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eÁn aukaefna\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eHentar bæði grænmetisætum og vegan\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e\u003cspan\u003eUm 30 dagskammtar í hverri pakkningu\u003c\/span\u003e\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eHvað er kreatín?\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eKreatín er efni sem líkaminn framleiðir sjálfur og geymir að mestu í vöðvunum. Þar gegnir það mikilvægu hlutverki við orkuframleiðslu, sérstaklega þegar álagið er mikið og stendur yfir í stuttan tíma.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eKreatín er því vinsælt meðal þeirra sem stunda styrktarþjálfun og aðra hreyfingu þar sem reynir á styrk og kraft. Það getur einnig verið gagnlegt samhliða styrktarþjálfun þegar markmiðið er að viðhalda styrk og vöðvamassa með hækkandi aldri.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eKreatín mónóhýdrat er sú tegund kreatíns sem mest hefur verið rannsökuð og sterk vísindaleg gögn liggja fyrir um virkni þess.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eNotkun\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eTakið \u003c\/span\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003e1 kúfaða teskeið (um 5 g) daglega\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003cspan\u003e og hrærið út í heitan eða kaldan drykk.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eBest er að taka kreatín daglega. Tímasetning dagsins skiptir minna máli en regluleg inntaka. Á æfingadögum mælir Biocare með að taka það eftir æfingu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eNotið alltaf þurra skeið þar sem duftið getur kekkjast ef raki kemst að því.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003ch2\u003e\u003cspan\u003eInnihald\u003c\/span\u003e\u003c\/h2\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan\u003eKreatín mónóhýdrat – 5 g í dagskammti\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e\u003cspan\u003eEngin önnur innihaldsefni.\u003c\/span\u003e\u003cspan\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"isSelectedEnd\"\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Fyrir heilsuna","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53741698613542,"sku":null,"price":3299.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0867\/3162\/0646\/files\/598150-pure-creatine_monohydrate_1000x1000_v5.0_cd342600-167a-4a46-a5c6-625b1dd2d597.webp?v=1787346981","url":"https:\/\/fyrirheilsuna.is\/products\/kreatin-duft-hreint-creatine-monohydrate","provider":"Fyrir heilsuna","version":"1.0","type":"link"}